Nýárskveðja frá Ungmennafélagi Selfoss

Hrafnhildur Hanna - vefur
Hrafnhildur Hanna - vefur

Stjórnir og starfsfólk Ungmennafélags Selfoss senda Selfyssingum öllum nær og fjær hugheilar óskir um farsæld á nýju ári og þakka samstarfið á liðnu ári.

Við hlökkum til komandi árs og þeirra tækifæri sem það ber í skauti sér. Með áframhaldandi góðri samvinnu og trú á eigin getu náum við enn betri árangri á næsta ári.

Skrifstofa Umf. Selfoss opnar aftur, mánudaginn 5. janúar. Hægt er að ná í framkvæmdastjóra í síma eða tölvupósti.