Örn ráðinn íþróttastjóri handknattleiksdeildar

Örn Íþróttastjóri
Örn Íþróttastjóri

Örn Þrastarson hefur verið ráðinn íþróttastjóri handknattleiksdeildar Umf. Selfoss. Staða íþróttastjóra er ný innan deildarinnar og tekur yfir allt faglegt starf hennar ásamt yfirumsjón með þjálfun yngri flokka félagsins og stjórn handknattleiksakademíu deildarinnar. Starfið var auglýst í vor og bárust fjöldi umsókna, öllum þeim sem sóttu um er þakkað fyrir áhugann.

Örn þarf varla að kynna, en hann er öllum hnútum kunnur í félaginu, enda hefur komið víða við í starfinu undanfarin ár í þjálfun o.fl. Hann hefur m.a. þjálfað yngri flokka félagsins, verið aðalþjálfari m.fl. kvenna í fjögur ár, aðstoðarþjálfari m.fl. karla s.l. tvö ár og haft umsjón með handknattleiksakademíunni. 

Stjórn og unglingaráð deildarinnar eru ánægð með ráðninguna og vonast til að hún muni efla faglegt starf deildarinnar til langs tíma.


Mynd: Þórir Haraldsson formaður deildarinnar, Örn Þrastarson nýráðinn íþróttastjóri og Guðmundur Steinþórsson frá unglingaráði.
Umf. Selfoss / ÁÞG