Pakkaþjónusta jólasveinanna í Ingólfsfjalli

Jólasveinn
Jólasveinn

Eins og áður mun Ungmennafélag Selfoss aðstoða við pakkaþjónustu jólasveinanna fyrir þessi jól en jólasveinarnir hafa lengi séð um að bera út pakka á Selfossi á aðfangadagsmorgun milli kl. 10:00-13:00.

Tekið er á móti litlum pökkum í félagsheimilinu Tíbrá á Þorláksmessu kl. 18:00-21:00.

Gjald fyrir systkinahóp er kr. 1.000.