Selfoss semur við níu unga leikmenn

2-flb
2-flb

Níu ungir og efnilegir knattspyrnumenn skrifuðu á dögunum undir þriggja ára samning við knattspyrnudeild Selfoss.

Leikmennirnir eru allir á aldrinum 16-18 ára og leika með 2. og 3. flokki félagsins auk þess sem nokkrir þeirra hafa fengið smjörþefinn af meistaraflokksleikjum nú í sumar.

Þetta eru þeir Adam Örn Sveinbjörnsson, Alfredo Ivan Arguello Sanabria, Anton Breki Viktorsson, Arilíus Óskarsson, Guðmundur Aðalsteinn Sveinsson, Jökull Hermannsson, Kristinn Sölvi Sigurgeirsson, Þorkell Ingi Sigurðsson og Þormar Elvarsson.

„Við erum hrikalega ánægðir að hafa gengið frá samningum við þessa ungu leikmenn. Framtíðin hjá knattspyrnudeildinni er svo sannarlega björt,“ sagði Adólf Ingvi Bragason, formaður deildarinnar í samtali við Sunnlenska.is.

Nánar er rætt við Adólf á Sunnlenska.is.

---

Ljósmyndir: Sunnlenska.is/Guðmundur Karl

2-fl