Sesar í U17

Lúðvík Gunnarsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið Sesar Örn Harðarson leikmann Selfoss í hóp sem tekur þátt í milliriðlum undankeppni EM 2023.

Ísland er í riðli með Svartfjallalandi, Wales og Skotlandi. Þau lið sem vinna sína riðla fara áfram í lokakeppnina ásamt þeim sjö liðum með bestan árangur í öðru sæti riðlanna, en leikið er í átta riðlum. Riðillinn verður leikinn í Wales dagana 22.-28. mars.