Sex met á Grunnskólamóti Árborgar

Grunnskólamót Árborgar 2014
Grunnskólamót Árborgar 2014

Það voru 185 keppendur í 1.-10. bekk Vallaskóla, Sunnulækjarskóla og Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri sem tóku þátt í Grunnskólamóti Árborgar sem haldið var á frjálsíþróttavellinum á Selfossi í 16. sinn þann 28. maí sl. Glæsilegur árangur  náðist í mörgum greinum og voru sex grunnskólamet slegin á mótinu. Keppnisaðstæður voru mjög góðar en meðvindur var í langstökki og spretthlaupum hjá öllum flokkum en hann var því miður yfir leyfilegum mörkum. Í mjög mörgum greinum var árangur yfir gildandi grunnskólameti en til að árangur fáist staðfestur má meðvindur ekki fara yfir 2,0 metra á sek.

Harpa Svansdóttir, Vallaskóla, sigraði allar fjórar greinarnar í flokki 9.-10. bekkjar og setti grunnskólamet í kúluvarpi. Hún var vel yfir núgildandi meti í langstökki en vindur yfir leyfilegum mörkum. Helga Margrét Óskarsdóttir, Vallaskóla, sigraði í langstökki, spjótkasti og kúluvarpi í flokki 7.-8. bekkjar og Barbára Sól Gísladóttir, Vallaskóla, sigraði í 100 m hlaupi í sama flokki. Guðjón Baldur Ómarsson, Vallaskóla, sigraði í spjótkasti og langstökki í flokki 7.-8. bekkjar og stökk þar yfir gildandi meti en vindur var yfir leyfilegum mörkum. Valgarður Uni Arnarsson, Sunnulækjarskóla, sigraði í 100 m hlaupi og kúluvarpi í flokki 7.-8. bekkjar. Í flokki 6. bekkjar stráka sigraði Hákon Birkir Grétarsson, Vallaskóla, í öllum þremur greinunum og setti grunnskólamet í kúluvarpi. Hákon Birkir hljóp hraðar í 60 m hlaupi og stökk lengra í langstökki en gildandi grunnskólamet en vindur var yfir leyfilegum mörkum. Hildur Helga Einarsdóttir, Vallaskóla, sigraði kúluvarpið  á nýju grunnskólameti og stökk einnig lengst allra í langstökki í flokki 6. bekkjar og Bríet Bragadóttir, BES, hljóp hraðast allra stúlkna í 6. bekk í 60 m hlaupi. Eva María Baldursdóttir, Vallaskóla, sigraði í þremur greinum í flokki 5. bekkjar og hún hljóp hraðar í 60 m og stökk lengra í langstökki en gildandi met en vindur var yfir leyfilegum mörkum.  Hjalti Snær Helgason, Vallaskóla, sigraði og setti grunnskólamet í kúluvarpi í flokki 5. bekkjar en Aron Fannar Birgisson, Vallaskóla, sigraði í 60 m hlaupi og langstökki og var árangur í báðum tilfellum yfir gildandi metum en vindur of mikill.

Í flokki 1.-4. bekkinga fengu allir þátttökuverðlaun en tvö grunnskólamet litu dagsins ljós hjá yngstu keppendunum. Í kúluvarpi bætti Benjamín Guðnason, Sunnulækjarskóla, metið hjá piltum 4. bekkjar og Eydís Arna Birgisdóttir, Vallaskóla, bætti metið í langstökki 1. bekkjar stúlkna þrátt fyrir að hafa lent í öðru sæti í keppninni. Stúlkan í fyrsta sætinu náði ekki löglegum vindi í sínum stökkum.

Öll úrslit mótsins má sjá á heimasíðu Frjálsíþróttasambands Íslands.

Myndir frá mótinu má finna á Fésbókarsíðu Ungmennafélags Selfoss.

Dýrleif Nanna Guðmundsdóttir svífur í langstökkinu.
Mynd: Umf. Selfoss/Gissur