Þorsteinn Aron til Fulham

Knattspyrna - Þorsteinn Aron Antonsson
Knattspyrna - Þorsteinn Aron Antonsson

Selfyssingurinn ungi og efnilegi, Þorsteinn Aron Antonsson, er genginn til liðs við úrvalsdeildarfélagið Fulham á Englandi. Hann gerir þriggja ára samning við félagið.

Þorsteinn Aron steig sín fyrstu skref í meistaraflokki Selfoss í sumar og spilaði 17 leiki í deild og bikar. Hann stóð sig með eindæmum vel og vakti áhuga í Englandi. Hann er fluttur til Lundúna en hann mun æfa og spila með U-18 liði félagsins til að byrja með.

Við óskum honum alls hins besta í Englandi og í framtíðinni en þetta er mikil viðurkenning fyrir bæði leikmanninn og félagið.

---

Þorsteinn Aron í leik með Selfoss.
Ljósmynd úr safni Umf. Selfoss