Þuríður komin heim

19427578_10212806875873904_1059339299_n
19427578_10212806875873904_1059339299_n

Þuríður Olsen Guðjónsdóttir hefur gert tveggja ára samning við handknattleiksdeild Selfoss.

Þuríður er gríðarlega öflug skytta og varnarjaxl hinn mesti. Hún hefur spilað með öllum yngri landsliðum Íslands og er einstaklega margslungin og úrræðagóður handboltamaður sem án efa á eftir að blómstra á Selfossi nú þegar hún snýr heim eftir tveggja ára sjálfskipaða útlegð.

Þuríður spilaði síðustu tvö keppnistímabil með Fylki við mjög góðan orðstír.

Handknattleiksdeild Selfoss fagnar því að Þuríður hafi ákveðið að ganga til liðs við félagið að nýju og væntir mikils af henni sem og liðsfélögum næsta vetur.

MM