UMFÍ | Fræðslu- og verkefnasjóður

UMFÍ - 2017 Nýtt
UMFÍ - 2017 Nýtt

Umsóknarfrestur til að sækja um styrki úr Fræðslu- og verkefnasjóði Ungmennafélags Íslands er til 1. október nk.

Sjóðurirnn veitir styrki tvisvar á ári og seinni umsóknarfrestur ársins er til 1. október. Umsóknum skal skilað rafrænt á þar til gerðum umsóknareyðublöðum sem er að finna á heimasíðu UMFÍ (www.umfi.is) undir styrkir.

Sjóðurinn veitir m.a. styrki til félags- og íþróttastarfs ungmennafélagshreyfingarinnar með því að auka menntun og þekkingu félaga innan hreyfingarinnar á íþróttagreinum, þjálfun, í félagsmálum og félagsstarfi.

Rétt til styrkveitingar úr sjóðnum eiga allir félagar í ungmennafélögum sem eru virkir í starfi og hafa uppáskrift síns félags eða sambands til að afl a sér aukinnar þekkingar á sínu sérsviði sem gæti nýst viðkomandi félagi, sambandi og ungmennafélagshreyfingunni í heild. Einnig eiga stjórn og nefndir UMFÍ, héraðssambönd, ungmennafélög og deildir innan þeirra rétt á að sækja um styrk úr sjóðnum. Sjóðsstjórn er heimilt að veita styrki úr sjóðnum að eigin frumkvæði til verkefna sem ekki teljast til árlega verkefna hreyfingarinnar.

Nánari upplýsingar eru gefnar á þjónustumiðstöð UMFÍ í síma 568-2929.