Unglingalandsmótið verður á Selfossi árið 2020

HSK - Unglingalandsmót 2017
HSK - Unglingalandsmót 2017

Unglingalandsmót UMFÍ fór fram á Egilsstöðum nú um verslunarmannahelgina og var fjöldi Selfyssinga á mótinu ásamt tæplega 150 keppendum frá HSK. Fjölbreytt dagskrá var í boði í fjölmörgum íþróttagreinum þar sem börn og unglingar á aldrinum 11-18 ára öttu kappi en einnig var boðið upp á fjölbreytta afþreyingardagskrá fyrir alla fjölskylduna.

Mótið tókst mjög vel á allan hátt. Keppendur og mótsgestir voru til fyrirmyndar, frábær stemning var hjá öllum fjölskyldum á tjaldstæðum og iðaði bærinn af lífi alla mótahelgina.

Næsta Unglingalandsmót verður haldið í Þorlákshöfn að ári og árið 2019 verður það haldið á Höfn í Hornafirði. Á setningaathöfn mótsins var tilkynnt að árið 2020 verður mótið haldið á Selfossi og er það mikið fagnaðarefni fyrir Sunnlendinga.

---

Keppendur HSK vöktu mikla athygli í setningarathöfninni fyrir glæsilega innkomu.
Ljósmynd: HSK/Þórir Haraldsson