Uppskeruhátíð ÍMÁ 2014

Sveitarfélagið Árborg byggðamerki
Sveitarfélagið Árborg byggðamerki

Hin árlega uppskeruhátíð íþrótta- og menningarnefndar Árborgar verður haldin í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi þriðjudaginn 30. desember kl. 20:00.

Þar verða afhentir styrkir úr Afreks-og styrktarsjóði Umf. Selfoss og Árborgar auk annarra íþróttafélaga í Árborg. Hvatningaverðlaun verða veitt, afhentir styrkir fyrir afburðaárangur og tilkynnt kjör íþróttakonu og íþróttakarls Árborgar 2014.

Anton Guðjónsson og Gunnar Guðni verða með tónlistaratriði. Kaffiveitingar í boði eftir verðlaunaafhendingu.

Hátíðin er öllum opin og allir eru hjartanlega velkomnir.

Íþrótta- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Árborgar