Úrslit í fyrsta Grýlupottahlaupinu 2014

20140426_112824_resized_1
20140426_112824_resized_1

Fyrsta Grýlupottahlaup ársins 2014 fór fram á Selfossvelli laugardaginn 26. apríl. Þátttakendur voru 161 sem er mun meiri þátttaka en síðustu ár og ljóst að fjölmargir vilja taka þátt í þessu skemmtilega hlaupi. Vonandi verður framhald á góðri mætingu og yndislegu veðri sem lék við hlaupara.

Hlaupaleiðinni var breytt örlítið frá fyrra ári en vegalengdin er sú sama, rúmir 850 metrar.

Úrslit úr hlaupinu má finna á fréttavefnum Sunnlenska.is með því að smella á hlekkina hér fyrir neðan.

1. Grýlupottahlaup 2014

Annað hlaup ársins fer fram nk. laugardag 3. maí. Skráning hefst kl. 10:30 og er fólk hvatt til að mæta tímanlega til að forðast biðraðir.

Allir sem lokið hafa fjórum hlaupum fá viðurkenningu og verður verðlaunaafhending laugardaginn 7. júní kl. 11:00 við Tíbrá, félagsheimili Ungmennafélags Selfoss.