Úthlutað úr Afreks- og styrktarsjóði Umf. Selfoss og Árborgar

Afrekssjodur_UMFS2014gk
Afrekssjodur_UMFS2014gk

Tilkynnt var um úthlutun úr Afreks- og styrktarsjóði Umf. Selfoss og Árborgar á uppskeruhátíð íþrótta- og menningarnefndar Árborgar sem fram fór í hátíðarsal Fjölbrautaskóla Suðurlands 30. desember sl. Úthlutunin var samþykkt á fundi framkvæmdastjórnar Umf. Selfoss þann 17. desember. Til úthlutunar úr sjóðnum voru 2,4 milljónir en heildarupphæð umsókna var um 8,8 milljónir.

Hluti af úthlutun félagsins, eða um 1 milljón, fer annars vegar í æfinga- og keppnisferðir á vegum félagsins og hins vegar í námskeið sem þjálfarar félagsins sækja en meginhlutinn, eða 1,4 milljónir, eru styrkir sem renna beint til afreksíþróttamanna okkar.

Í úthlutun ársins 2014 fengu 23 íþróttamenn úthlutuðum styrk að fjárhæð kr. 35 þúsund. Um er að ræða einstaklinga sem flestir eru farnir að láta til sín taka við keppni með yngri landsliðunum Íslands.

Tíu íþróttamenn fengu styrk að upphæð kr. 75 þúsund og er um að ræða einstaklinga sem keppa með A-landsliðum Íslands eða hafa náð sérstaklega góðum árangri í alþjóðlegri keppni eða á Íslandi. Um er að ræða eftirfarandi einstaklinga: Dagný Brynjarsdóttir knattspyrnukona, Daníel Jens Pétursson taekwondomaður, Egill Blöndal júdómaður, Eva Grímsdóttir fimleikakona, Fjóla Signý Hannesdóttir frjálsíþróttakona, Guðmunda Brynja Óladóttir knattspyrnukona, Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir handboltakona, Hugrún Hlín Gunnarsdóttir fimleikakona, Ingibjörg Erla Grétarsdóttir Taekwondokona og Þór Davíðsson júdómaður

Við óskum öllu afreksfólki okkar innilega til hamingju með glæsilegan árangur undir merkjum Selfoss og Íslands. Við erum stolt af ykkur og óskum ykkur gæfu og góðs gengis á komandi árum.

Úthlutun úr afreks- og styrktarsjóði 2014

---

Frá úthlutun styrkja 2015 frá vinstri Gissur Jónsson framkvæmdastjóri Umf. Selfoss, Eva, Daníel Jens, Guðmunda Brynja, Egill, Hrafnhildur Hanna, Fjóla Signý, Hugrún Hlín, Þór og Guðmundur Kr. Jónsson formaður Umf. Selfoss. Á myndina vantar Dagnýju og Ingibjörgu Erlu.
Ljósmynd: Guðmundur Karl Sigurdórsson