Vann 48" sjónvarp í jólahappadrætti

Jólahappadrætti unglingaráðs (1)
Jólahappadrætti unglingaráðs (1)

Mánudag 21. desember síðastliðinn var dregið í jólahappadrætti unglingaráðs knattspyrnudeildar Selfoss. Aðalvinningurinn, 48“  led/smart sjónvarp frá Árvirkjanum, kom á miða númer 812 sem er í eigu Ingibjargar Jóhannesdóttur á Selfossi. Það var Jóhann Konráðsson verslunarstjóri í Árvirkjanum sem afhenti Ingibjörg sjónvarpið í verslun Árvirkjans milli hátíða.

Á myndinni er Ingibjörg ásamt Jóhanni og Selmu Sigurjónsdóttur úr unglingaráði knattspyrnudeildar.

Hægt er að vitja vinninga á skrifstofutíma í Tíbrá, félagsheimili Umf. Selfoss, að Engjavegi 50.

Vinningsnúmer í jólahappdrættinu