Bryndís Embla Einarsdóttir UMF Selfoss lenti í öðru sæti í spjótkasti kvenna á Smáþjóðameistaramótinu sem fram fór í Monaco 30.maí.
Bryndís kastaði spjótinu lengst 51,28m. Hún kastaði tvisvar yfir 50m. Bryndís var að bæta sig um tæpa 5m og náði með kastinu lágmarki á HM U20. Virkilega vel gert hjá henni.
Hjálmar Vilhelm Rúnarsson keppti einnig á Smáþjóðameistaramótinu í hástökki karla. Hann stökk 1,90m og lenti í fjórða sæti.
Virkilega góður árangur hjá þessum ungu fulltrúum UMF Selfoss fyrir Íslands hönd.
