Dean Martin kveður Selfoss

Knattspyrnudeild Selfoss og Dean Martin hafa komist að samkomulagi um að Dean láti af störfum sem þjálfari meistaraflokks karla eftir um það bil fimm ár í starfi.

Dean Martin tók við liði Selfoss í erfiðri stöðu um mitt tímabil 2018 en þá sat liðið 11. sæti í 1. deildarinnar sem þá hét Inkasso-deildin. Ekki tókst að forða liðinu frá falli það sumarið og var það 2. deild sem beið sumarið 2019. Afar litlu mátti muna, eða einungis einu stigi, að liðið kæmist í fyrstu tilraun aftur upp í 1. deild aftur en ekki náðist það.

Sumarið 2020 stýrði Dean Selfyssingum upp í 1. deild með glæsibrag. Sumarið 2021 endaði liðið í 8. sæti Lengjudeildarinnar og í 9. sæti árið eftir. Niðurstaða tímabilsins í ár var mikil vonbrigði og féll liðið um deild og mun leika í 2. deild næsta sumar.

Dean Martin hefur á þessum fimm árum gefið mörgum ungum og efnilegum leikmönnum tækifæri í meistaraflokk og þeir öðlast dýrmæta reynslu sem þeir munu búa að á sínum knattspyrnuferli. Margir þeirra hafa fest sig í sessi sem lykilmenn liðsins.

,,Þessi fimm ár hafa verið frábær. Ég hef kynnst svo mikið af frábæru fólki í kringum félagið og fengið að þjálfa frábæra knattspyrnumenn, ég hef elskað hverja einustu mínútu hérna. Það hefur verið frábært að fylgjast með leikmönnum koma upp úr yngri flokkum og sjá þá þroskast, vaxa og dafna sem leikmenn í meistaraflokki. Ég mun koma til með að sakna öllu því frábæra fólki sem ég hef starfað með og fengið að kynnast,” segir Dean við starfslokin.

,,Mig langar að þakka öllum þeim þjálfurum og starfsfólki sem ég hef starfað með í kringum liðið þennan tíma og fyrir alla þá vinnu, dugnað og kraft sem þeir settu í verkefnið með mér. Haldið áfram ykkar góða starfi, áfram Selfoss!” segir Dean Martin að lokum.

Knattspyrnudeild Selfoss þakkar Dean Martin fyrir ánægjulegt samstarf síðastliðin fimm ár og óskar honum alls hins besta í þeim verkefnum sem hann tekur sér fyrir hendur í framtíðinni.

Takk Dean!