Eva María hefur átt frábært keppnistímabil með háskólaliði sínu
Eva María Baldursdóttir náði þeim frábæra árangri að komast inn á lokakeppni NCAA sem fram fór í Eugene í Oregon í Bandarikjunum dagana 11.-14.júní, en NCAA er meðal virtustu háskólakeppna í heiminum. Eva María gerði sér lítið fyrir í lokakeppninni og vippaði sér yfir 1.84m í hástökki og náði 12.sæti en stúlkurnar í sætum 7-12 stukku allar yfir 1.84m. Stúlkan sem sigraði vippaði sér yfir 1,96m. Eva María sem keppir fyrir Pittsburgh bætti sinn besta árangur um 2 cm og setti í leiðinni HSK met í flokki 20-22 ára. Árangur Evu Maríu er jafnframt þriðja hæsta stökk íslenskrar konu frá upphafi og skipar henni í 19.sæti topplista hástökkvara í Evrópu undir 23 ára aldri. Stórkostlegur árangur hjá Evu Maríu og verður spennandi að fylgjast með henni í keppnum sumarsins en hún hefur nú þegar náð lágmarki á EM U23 sem verður í Bergen í júlí.