Hjálmar Vilhelm í keppni á NM en hann stóð sig einstaklega vel í kúluvarpinu og sigraði þá grein. Mynd: Marta
Hjálmar Vilhelm Rúnarsson tók þátt í Norðurlandameistaramótinu í fjölþrautum sem haldið var í Gautaborg helgina 14.-15.júní sl. Hjálmar Vilhelm náði þeim frábæra árangri að ná 6733 stigum í U18 flokknum og setja nýtt Íslandsmet. Hjálmar Vilhelm endaði í 5 sæti í tugþrautinni aðeins 37 stigum frá þriðja sætinu og 236 stigum frá sigursætinu. Tugþrautin í flokki U18 var einstaklega sterk og jöfn og fengu sjö keppendur yfir 6500 stig og er Hjálmar Vilhelm í 17. sæti á topplista Evrópu í hans flokki og segir það allt sem segja þarf um styrkleika mótsins.. Hjálmar Vilhelm setti nýtt Íslandsmet í tugþraut í flokki 16-17 ára með þessum árangri en hann bætti Íslandsmet Birnis Vagns Finnssonar frá árinu 2020 um 478 stig. Hjálmar Vilhelm stórbætti einnig eigið HSK met í tugþraut sem hann setti á sama móti í fyrra. Hjálmar Vilhelm setti einnig nýtt Íslands- og HSK met í spjótkasti á mótinu en 700 gr spjótinu var breytt um síðustu áramót.
Fyrri keppnisdaginn byrjaði Hjálmar Vilhelm á því að hlaupa 100m á 11,55 sek og stökkva 6,17m í langstökki. Hann sigraði kúluvarpið er hann kastaði 15,27m og hann var í hörkustuði í hástökki er hann vippaði sér yfir 1,92m og bætti sinn besta árangur en fyrir keppnina átti hann best 1.90m innanhúss og náði öðru sæti. Fyrri keppnisdaginn endaði hann á að bæta sig í 400m hlaupi á tímanum 54,40 sek.
Seinni keppnisdaginn byrjaði Hjálmar Vilhelm á að bæta sig í 110 m grindahlaupi þegar hann kom í mark á tímanum 15,95 sek. Hann þeytti kringlunni 46,41m sem var næstlengsta kast keppninnar. Í stangarstökki bætti hann sig er hann vippaði sér yfir 3.33 m og því næst kastaði hann spjótinu lengst allra er hann kastaði því 57,57m og setti Íslandsmet og að lokum hljóp hann 1500m á 5:04,66 mín
Hjálmar er á virkilega flottri siglingu í tugþrautinni og verður gaman að fylgjast með honum á næstu mótum.