Iðkendasamningar við 1 flokk og meistaraflokk Selfoss

Meistaraflokkur og 1 flokkur fimleikadeildar Selfoss
Meistaraflokkur og 1 flokkur fimleikadeildar Selfoss

Um helgina skrifuðu elstu iðkendur deildarinnar undir iðkendasamning við fimleikadeild Selfoss fyrir komandi tímabil 23/24.

Fimleikadeildin er afar stolt af þessum frábæra hóp iðkenda í 1 flokk kvenna og meistaraflokk. Iðkendur eru á aldrinum 14 - 20 ára.

Allir þessir iðkendur eru fyrirmynd félagsins fyrir aðra iðkendur. Spennandi verkefni eru á döfinni í vetur og má þar nefna úrtökumót fyrir Norðurlandamót Unglinga.

Iðkendasamningurinn er hvatning bæði fyrir fimleikadeildina og iðkendur. Samingur sem þessu heldur bæði félaginu og iðkendum á tánum með að gera sitt allra besta meðan á tímabilinu stendur.

Við erum afar spennt fyrir framtíðinni með þessum flottu einstaklingum og óskum við þeim innilega til hamingju.

ÁFRAM SELFOSS.