Iceland Classic í hópfimleikum fór fram sunnudaginn 3. maí síðastliðinn og átti Selfoss 4 lið í keppni, öll úr 4. flokki.
Mótið var nú haldið í fyrsta skipti en það sker sig út frá hefðbundnum mótum að því leitinu til að allir keppendur fengu eins boli og voru því ekki að keppa í sínum keppnisfatnaði. Þá voru reglurnar aðeins frábrugðnar FSÍ reglunum og liðin aðlöguðu sig að því.
Liðin okkar áttu flottan dag á þessu síðasta móti sínu í vetur, sýndu flottar framfarir og voru heilt yfir okkur sannarlega til sóma.
Til hamingju með mótið kæru keppendur og þjálfarar!




Einnig stóð liðunum til boða að fara í skemmtilegan myndakassa;




Úrslitin má sjá hér: https://live.sporteventsystems.se/Score/WebScore/3544?f=8089&country=isl&year=-1
Fimleikadeild Selfoss er í samstarfi við Íslandsbanka, Bílverk BÁ, Hótel Geysi og HSH þrif og flutninga.