Nú er hægt að senda inn efni til Sögu- og minjanefndar

Átt þú gamlar myndir, skjöl, mótaskrár, úrklippur, muni eða annað efni tengt starfi Umf. Selfoss? Við viljum gjarnan varðveita sögu félagsins og safna saman efni sem annars gæti glatast.

Nú er hægt að senda efni inn rafrænt í gegnum heimasíðuna, en einnig er alltaf hægt að koma með myndir, skjöl eða aðra muni til okkar í Tíbrá ef fólk vill frekar afhenda efnið þannig.

Til að senda inn efni þarf að velja "Um félagið" uppi í hægra horninu, neðst undir "Annað" er að finna krækju sem heitir "Senda inn til Sögu- og minjanefndar" síðan er bara að fylgja upplýsingunum sem að þar eru.

Ef þú skoðar þetta í símanum þá þarf fyrst að smella á strikinn þrjú uppi í hægra horninu og síðan örina hliðinn á "Um félagið"