Fjórða og síðasta umferð Íslandsmótsins í motocross fór fram á Akureyri hjá KKA. Metþáttaka var á mótinu en rúmlega 90 þáttakendur voru skráðir til leiks.
Í MX2 flokknum var það Eric Máni sem stóð uppi sem sigurvegari og tryggði sér því Íslandsmeistaratitilinn með fullt hús stiga. í MX1 flokknum tryggði Alexander Adam sér annað sætið og endaðar því annar í Íslandsmótinu.
Í unglingaflokki á 125cc var það Ísmeal Ísak sem sigraði og tryggði sér með því sinn fyrsta Íslandsmeistaratitill og sýndi þar með glæsilegan árangur.
Mikil ánægja ríkti með mótið í heild sinni og þykir metþátttakan til marks um þann kraft og vöxt sem einkennir motocross-íþróttina hér á landi um þessar mundir.
MX1 - flokkurinn
1.sæti Eiður Orri, 2. sæti Alexander Adam, 3. sæti Máni Freyr

MX2 - Flokkurinn
1.sæti Eric Máni, 2.sæti Tristan Berg, 3. sæti Alex Þór

Unglingaflokkur 125cc
1.sæti Ísmael Ísak, 2.sæti Máni Bergmundsson, 3.sæti Sigurður Daði
