Skemmtilegt jólamót hjá borðtennisdeild Selfoss

Borðtennisdeild Umf. Selfoss hélt skemmtilegt jólamót á mánudaginn þar sem keppendur sýndu flotta takta við borðið.

Keppt var í tveimur flokkum, annars vegar byrjendaflokki og hins vegar lengra komnum flokki.

Í byrjendaflokki varð Daniel í fyrsta sæti, Alex í öðru sæti og Svava og Úlfar Kári í þriðja sæti.

Í flokki lengra kominna varð Stebbi Orlandi í fyrsta sæti, Almar í öðru sæti og Sindri og Sveinbjörn í þriðja sæti.

Borðtennisdeild Umf. Selfoss óskar öllum keppendum til hamingju með góðan árangur og þakkar fyrir frábært mót.