Tap í úrslitaleik

Úrslitaleikur bikarkeppni 2.flokks karla fór fram á JÁVERK-vellinum fimmtudaginn 21. september síðastliðinn.
Strákarnir okkar tóku á móti Víkingum frá Reykjavík. Leikurinn var hörkuspennandi og mikil skemmtum fyrir þá fjölmörgu áhorfendur sem mættu til að styðja við liðið sitt.
Markalaust var eftir mjög góðan fyrri hálfleik. Seinni hálfleikur var frábær skemmtun þar sem Víkingar skoruðu tvö mörk með stuttu millibili, Selfoss sótti í sig veðrið og átti lokamínúturnar en inn vildi boltinn ekki, lokatölur 0-2. 

2. flokkur á enn þrjá heimaleiki eftir í deildarkeppni en hér fyrir neðan má sjá dagskrá þeirra fram að lokum tímabilsins

Mán. 25.09.2023 19:00 2. flokkur karla B - Lota 3 JÁVERK-völlurinn Selfoss/Árborg/Stokk ÍA/Kári/Skall/Víkó
Fim. 28.09.2023 18:00 2. flokkur karla B - Lota 3 JÁVERK-völlurinn Selfoss/Árborg/Stokk Stjarnan/KFG/Álftanes 2
Sun. 01.10.2023 14:00 2. flokkur karla B - Lota 3 JÁVERK-völlurinn Selfoss/Árborg/Stokk Afturelding/Hvíti/Álaf