Skráning í Íþróttaskóla Fimleikadeildar Selfoss er hafin. Námskeiðið hefst 13. september 2026, er kennt á sunnudögum og er alls 12 skipti.
Íþróttaskólinn er fyrir börn á aldrinum 1–5 ára og fer fram í fimleikasal deildarinnar. Börn mæta í fylgd með fullorðnum sem tekur virkan þátt í tímanum.
Fimleikadeild Selfoss hefur starfrækt Íþróttaskólann í fjölda ára við frábærar undirtektir. Foreldrum gefst þar tækifæri til að mæta með börnum sínum og eiga góða stund saman í fimleikasalnum.
Fimleikasalurinn er settur upp sem ævintýraveröld fyrir börnin þar sem þau fá að hreyfa sig, kanna umhverfið og prófa fjölbreyttar brautir og verkefni.
Skynfæri barnsins eru örvuð með brekkum, mjúkum og hörðum dýnum, göngum, mismunandi áferðum á áhöldum, háum áhöldum og trampólínum. Litadýrðin og fjölbreytt uppsetning salarins skapar skemmtilegt og örvandi umhverfi.
Börnin fá að klifra, skríða, hoppa og prófa sig áfram í fjölbreyttum brautum.
Verkefnin styðja við jafnvægi, samhæfingu, styrk og almenna hreyfifærni.
Uppsetning og verkefni eru fjölbreytt og breytileg þannig að börnin fái nýja upplifun.
Fullorðnir eru virkir þátttakendur og leiðbeinendur barnsins í tímanum.
Á svæðinu er aðalþjálfari sem sér um uppsetningu í salnum, tekur á móti foreldrum og kemur þeim af stað í þær brautir sem eru í boði hverju sinni.
Ungir iðkendur fimleikadeildarinnar og aðstoðarþjálfarar eru einnig á svæðinu. Þau aðstoða börnin sem vilja prófa einfaldar grunnæfingar, hopp eða klifur, sjá um öryggi brautanna, lagfæra, leiðbeina og hrósa.
Börn koma í fylgd með fullorðnum og eru á ábyrgð þeirra. Foreldrar eru fullir þátttakendur í Íþróttaskólanum rétt eins og börnin.
Börn eru mismunandi. Sum eru óhrædd og vilja strax prófa allt, en önnur eru varkárari og kjósa að fylgja foreldrum sínum. Í Íþróttaskólanum geta börnin farið á sínum hraða og stigið sín fyrstu skref í fimleikasalnum með foreldrum sínum sér við hlið.
Námskeiðið er 12 sunnudagar. Veldu þann hóp sem passar aldri barnsins og skráðu í gegnum Abler.