Haustmót 2 var haldið í Iðu Selfossi Laugardaginn 25 nóvember. Mótið byrjaði snemma um morguninn og stóð yfir allan daginn og fram á kvöld. Selfoss var með þrjú lið í 2. flokki kvenna á mótinu.
Selfoss 1 lenti í 2. sæti eftir harða baráttu við Gerplu.
Selfoss 3 hafnaði í 8. sætinu og Selfoss 2 í því 12. Þessi lið eru bæði á yngri ári í þessum flokk.
Mótið fór vel fram og keppendur stóðu sig vel og voru allir til fyrirmyndar.

