Guðjónsmótið í Iðu

Flautað verður til leiks í Guðjónsmótinu í Iðu á morgun. Það er mikil eftirvænting fyrir mótinu og mörg lið búin að biðja um að setja nafn þeirra á bikarinn fyrir mót.Um kvöldið verður geggjað ball um  í Hvítahúsinu þar sem nokkrir af þekktustu tónlistarmönnum Selfyssinga munu stíga á stokk og skemmta okkur fram eftir nóttu.

Unnu 42" sjónvarp í jólahappdrætti

Laugardag 21. desember sl. var dregið í jólahappadrætti unglingaráðs knattspyrnudeildar. Aðalvinningurinn, sjónvarp frá Árvirkjanum, kom á miða númer 499 og fór sá vinningur niður á Eyrarbakka.

Unnu 42" sjónvarp í jólahappdrætti

Laugardag 21. desember sl. var dregið í jólahappadrætti unglingaráðs knattspyrnudeildar. Aðalvinningurinn, sjónvarp frá Árvirkjanum, kom á miða númer 499 og fór sá vinningur niður á Eyrarbakka.

Lífshlaupið, heilsu- og hvatningarverkefni ÍSÍ

Lífshlaupið, heilsu- og hvatningarverkefni ÍSÍ, verður ræst í sjöunda sinn miðvikudaginn 5. febrúar 2014. Lífshlaupið höfðar til allra landsmanna og gefst þátttakendum kostur á að taka þátt í vinnustaða-, grunnskóla- og einstaklingskeppni, þar sem hver og einn getur skráð inn sína hreyfingu allt árið.

Vorfjarnám 1. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ

Vorfjarnám 1. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ mun hefjast mánudaginn 17. febrúar nk. og tekur það átta vikur. Um er að ræða samtals 60 kennslustunda nám sem er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur.

Stórmót ÍR - þrautabraut hjá þeim yngstu

Selfoss átti keppendur í báðum þrautarbrautarflokkum á Stórmóti ÍR um helgina. Þrír keppendur kepptu í yngsta flokknum, 8 ára og yngri á laugardaginn og sjö kepptu í 9-10 ára flokknum á sunnudaginn.

FRÍMÍNÚTUR - sókn gegn sleni

Frjálsíþróttasamband Íslands (FRÍ) hefur sókn gegn sleni með því að setja af stað nýjan hreyfingarleik í grunnskólum sem nefnist Frímínútur.

Selfyssingar æfa með U19

Um seinustu helgi fóru fram úrtaksæfingar hjá U19 kvenna í Kórnum og Egilshöll.  Selfyssingarnir Eva Lind Elíasdóttir, Hrafnhildur Hauksdóttir og Karitas Tómasdóttir voru valdar til æfinga.Um næstu helgi tekur Svavar Berg Jóhannsson þátt í úrtaksæfingum hjá U19 karla í Kórnum og Egilshöll.

Fjóla Signý valin í landsliðið

Íþrótta- og afreksnefnd Frjálsíþróttasambands Íslands hefur myndað nýjan landsliðshóp fyrir árið 2014. Hópurinn verður endurskoðaður að loknu innanhússtímabili árið 2014.

13 réttir í Tíbrá og nýr hópleikur

Það dró strax til tíðinda í hópleik Selfoss getrauna, sem hófst sl. laugardag. Hópurinn Tígull jr. gerði sér lítið fyrir og var mað alla 13 leikina á seðlinum rétta.