Vetraræfingar í frjálsum hefjast í september

Frjálsar - Stórmót ÍR - 8-10 ára I
Frjálsar - Stórmót ÍR - 8-10 ára I

Vetrarstarfið hjá yngstu hópum í frjálsum hefjast mánudaginn 2. september, iðkendur 10-13 ára hefja æfingar mánudaginn 9. september og meistarahópurinn hefur tímabilið mánudaginn 23. september. Æfingar fara fram í íþróttahúsi Vallaskóla.

Æfingatímar og þjálfarar

Æfingagjöld

Gengið er frá skráningu í gegnum skráningar- og greiðslukerfið Nóra á slóðinni selfoss.felog.is en þar er einnig hægt að nýta frístundastyrk Sveitarfélagsins Árborgar með því að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum eða Íslykli.

Vinsamlegast athugið að rétt netfang verður að vera skráð í Nóra til að upplýsingar komist til skila.