Handboltaakademía

Handboltaakademía

Handboltaakademía Umf. Selfoss og FSu Kynningarmyndband væntanlegt

Nám og handbolti

Æfðu á
skólatíma.

Meiri tími fyrir leikinn þinn.

Í handboltaakademíunni vinnur þú að framförum í tækni og styrk samhliða námi í FSu. Þú lærir að þekkja eigin styrkleika, setja þér markmið og leggja þitt af mörkum í hópnum.

Valnámið spannar sex annir og gefur alls 30 einingar: 10 á hverju hæfniþrepi frá 1. til 3.

Fjórar æfingar á viku

Tækni á vellinum.
Styrkur í salnum.

Þú færð fjórar akademíuæfingar á viku til viðbótar við æfingar með flokknum þínum.

Æft er í íþróttahúsinu Iðu. Nánari upplýsingar um æfingatíma fást hjá handknattleiksdeildinni.

Tækniæfingar
2 á vikuÍþróttasalur Iðu
Styrktaræfingar
2 á vikuÞreksalur Iðu

Þjálfarateymið

Fólkið sem vinnur með þér.

Atli Kristinsson

Atli Kristinsson

Þjálfari

Rúnar Hjálmarsson

Rúnar Hjálmarsson

Styrktarþjálfari

Ástgeir Rúnar Sigmarsson

Ástgeir Rúnar Sigmarsson

Markmannsþjálfari

Frá árinu 2006

Saga sem þú getur
orðið hluti af.

Akademían hefur verið hluti af uppbyggingu handboltans á Selfossi frá 2006. Leiðir nemenda hafa legið í meistaraflokka, landslið og atvinnumennsku.

Haustið 2026 eru 18 iðkendur í akademíunni: 12 strákar og 6 stelpur.

iðkendur frá stofnun
209
hafa lokið öllum þremur árunum
67
í æfingahópum meistaraflokka félagsins hafa verið í akademíunni
32

Tölur frá handknattleiksdeild Umf. Selfoss, haust 2026.

Fleiri tölur úr starfinu

142 iðkendur hafa verið í akademíunni í eitt eða tvö ár. Tíu leikmenn úr akademíunni hafa komist í atvinnumennsku. Fjórtán hafa verið valdir í æfingahóp A-landsliðs Íslands og 13 þeirra hafa spilað landsleik.

Yfir 65 leikmenn hafa verið valdir til æfinga hjá landsliðum á framhaldsskólaaldri og yfir 35 hafa leikið opinberan leik fyrir Ísland.

Metnaður · ábyrgð · liðsheild

Þú leggur þitt
af mörkum.

Í akademíunni æfirðu þig líka í að taka ábyrgð, sýna þolinmæði og vinna með öðrum. Framfarir byggjast á því að þú takir virkan þátt í náminu og æfingunum.

Samningur og skuldbindingar

Allir iðkendur undirrita samning um að sinna námi, mæta á æfingar og taka þátt í verkefnum akademíunnar. Þeir skuldbinda sig einnig til að neyta ekki vímuefna, tóbaks eða áfengis á samningstímanum.

Sé samningurinn brotinn getur iðkanda verið vísað úr akademíunni án endurgreiðslu.

Skólaárið 2026–2027 · haust 2026

242.200 kr.fyrir skólaárið/keppnistímabilið

  • Æfingagjöld akademíu.
  • Æfingagjöld 3. flokks.
  • Keppnis- og æfingafatnaður.
  • Harpix, teip og aðrar nauðsynjar á æfingasvæðinu.

Löng keppnisferðalög eru niðurgreidd. Hlutur iðkanda er að hámarki 7.000 kr. á ferð fyrir ferðalag og gistingu. Matur er ekki innifalinn.

Akademíugjaldið er til viðbótar við innritunargjöld FSu.

Viltu vera með?

handbolti@umfs.is

482 4822
Engjavegur 50, Selfossi

Hafðu samband við deildina um akademíuna og næstu skref.

Umsóknir og innritun í FSu

Handknattleiksdeild Umf. Selfoss
Kt. 690390-2999