Knattspyrnuakademía

Knattspyrnuakademía

Knattspyrnuakademía Umf. Selfoss og FSu Kynningarmyndband væntanlegt

Nám og knattspyrna

Æfðu á
skólatíma.

Taktu boltann með inn í skóladaginn.

Í knattspyrnuakademíunni færðu einstaklingsmiðaða þjálfun í tækni, leikfræði og líkamlegum þáttum. Þjálfarar vinna með félagsliðinu þínu að heildstæðri þjálfun.

Valnámið er sex annir og alls 30 einingar: 10 á hverju hæfniþrepi frá 1. til 3.

Á vellinum og utan hans

Æfðu leikinn.
Skildu leikinn.

Æfingar fara fram í Lindex höllinni. Fræðsla og bóklegt nám eru í Tíbrá.

Hafðu samband við yfirþjálfara um æfingatöflu.

Æfingar
Lindex höllinFjölnota íþróttahús með hálfum knattspyrnuvelli
Fræðsla
TíbráFélagsheimili Umf. Selfoss

Þjálfararnir

Fólkið sem vinnur með þér.

Gunnar Borgþórsson

Yfirþjálfari

Gunnar Borgþórsson

gunnar@umfs.is
867 1461

Útskurður úr mynd birtri hjá Dagskránni, 2024.

Heiðar Helguson

Þjálfari

Heiðar Helguson

Ásamt öðrum þjálfurum akademíunnar.

Nám og íþróttir saman

Metnaður sem
fær pláss.

Skóladagurinn getur líka verið æfingadagur.

Í akademíum FSu fléttast íþróttaþjálfun saman við nám. Áhersla er lögð á heilbrigða lífshætti og árangur bæði í skólanum og íþróttinni.

Gjald

69.700 kr.á önn

Innifalið: æfingafatnaður, fræðsla og fyrirlestrar, auk aðgangs að hugbúnaði á borð við Sportabler og Veo.

Upplýsingar FSu, uppfærðar 25. febrúar 2026. Staðfestu gildandi gjald hjá deildinni við skráningu. Innritunargjöld FSu greiðast sérstaklega.

Viltu vera með?

knattspyrna@umfs.is

Spurningar um akademíuna:
867 1461 — Gunnar
Engjavegur 50, Selfossi

Umsóknir og innritun í FSu