Frjálsíþróttadeildin er til fyrirmyndar

Frjálsar - Aðalfundur 2020 Viðurkenningar
Frjálsar - Aðalfundur 2020 Viðurkenningar

Aðalfundur frjálsíþróttadeildar Selfoss fór fram í Tíbrá fimmtudaginn 6. febrúar. Á fundinum voru veittar viðurkenningar til iðkenda fyrir árangur seinasta árs auk þess sem stjórn deildarinnar var að langmestu leyti endurkjörin. Starfsemi deildarinnar er til mikillar fyrirmyndar og rekstur í föstum skorðum.

Ársskýrsla frjálsíþróttadeildar 2019

Á fundinum fékk deildin endurnýjun viðurkenningar sinnar sem Fyrirmyndardeild ÍSÍ en Fyrirmyndarfélag ÍSÍ og Fyrirmyndarhérað ÍSÍ eru gæðaverkefni íþróttahreyfingarinnar er snúa að íþróttastarfi. Er þetta viðurkenning á því að deildin standist gæðaviðurkenningu ÍSÍ fyrir íþróttastarf.

Sjá nánar í frétt á vef ÍSÍ

Handbók frjálsíþróttaeildar Umf. Selfoss 2020-2023

gj

---

Verðlaunahafar í efri röð f.v. Daníel Breki Elvarsson hlaut framfarabikar 14 ára og yngri, Hjalti Snær Helgason hlaut framfarabikar frjálsíþróttadeildar, Eva María Baldursdóttir afreksmaður frjálsíþróttadeildar og Álfrún Diljá Kristínardóttir afreksmaður 14 ára og yngri. Neðri röð f.v. Hróbjartur Vigfússon og Anna Kristín Bjarkadóttir sem hlutu verðlaun fyrir góða mætingu í flokkum 10 ára og yngri.


Ragnhildur Skúladóttir sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ sem afhenti Helga Sigurði Haraldssyni viðurkenningu sem fyrirmyndardeild ÍSÍ.


Þjálfarar frjálsíþróttadeildar Selfoss f.v. Ágústa Tryggvadóttir, Sesselja Anna Óskarsdóttir, Þuríður Ingvarsdóttir og Ólafur Guðmundsson.


Stjórn deildarinnar ásamt yfirþjálfara og starfsmanni deildarinnar f.v. Elvar Atli Hallsson, Helga Sigurðardóttir gjaldkeri, Helgi S. Haraldsson formaður, Svanhildur Gunnlaugsdóttir, Sigríður Anna Guðjónsdóttir yfirþjálfari og starfsmaður, Svava Steingrímsdóttir og Þuríður Ingvarsdóttir ritari. Á myndina vantar Ingibjörgu Hugrúnu Jóhannesdóttur sem er nýr fulltrúa iðkenda 16-25 ára

Ljósmyndir: Umf. Selfoss/Gissur