49 keppendur á Selfossmeistaramótinu í sundi

Selfossmeistaramótið í sundi fór fram sunnudaginn 26. febrúar sl. Alls voru keppendurnir 49 frá sunddeildum Umf. Selfoss og Hamars í Hveragerði og stungur í laugina 161. Keppendafjöldi skiptist nær því jafnt milli 10 ára og yngri og 11 ára og eldri. Sérstaka lukku vöktu þrír garpar frá Umf. Selfoss sem allir kepptu í 100 m skriðsundi. Höfðu yngri keppendur gaman að fylgjast með tilþrifum „gömlu mannana".

Besta afrek mótsins vann Ólöf Eir Hoffritz sem hlaut 504 FINA-stig fyrir 100 m skriðsund á tímanum 1:11,56 mín. Njáll Laugdal Árnason hlaut piltabikarinn fyrir flest samanlögð stig í piltaflokki. Ólöf Eir Hoffritz hlaut flest stig í flokki stúlkna og Kári Valgeirsson í flokki drengja. Eydís LífÞórisdóttir hlaut flest stig í flokki telpna og Benedikt Nökkvi Sigfússon í flokki sveina. Öll úrslit mótsins eru komin á úrslitasíðu sunddeildar.

Sunddeild Umf. Selfoss vill koma á framfæri þökkum til allra keppenda, foreldra, þjálfara og starfsmanna mótsins og ekki síst starfsmönnum Sundhallar Selfoss, sem lögðu sig fram um að gera mótið mögulegt. 
-iels

[gallery link="file" columns="4"]