Æfingabúðir til Helsinge

DK1
DK1

31. júlí síðastliðinn fóru 35 iðkendur og 5 þjálfarar frá fimleikadeild Selfoss til Helsinge í Danmörku. Þar eyddu þau viku í alþjóðlegum æfingabúðum, þar sem kennarar frá Danmörku sáu um skipulag og allt utanumhald. Iðkendur í búðunum voru frá ýmsum stöðum í Evrópu og því kynntust iðkendurnir okkar mikið af nýjum krökkum og lærðu margt nýtt. 

Þjálfararnir fóru einnig á hin ýmsu námskeið, varðandi þjálfun, hvort sem var í tengslum við gólfæfingar eða stökk. Ferðin gekk vel og iðkendur voru mjög ánægðir með skemmtilega ferð.