Andlát | Hörður Sævar Óskarsson

2010_45_TJ_03943
2010_45_TJ_03943

Hörður Sævar Óskarsson íþróttakennari og heiðursfélagi Umf. Selfoss, lést 17. janúar síðastliðinn. Hann var jarðsunginn frá Áskirkju í Reykjavík föstudaginn 25. janúar.

Hörður fæddist 1. júlí árið 1932. Hann vann um árabil mikið og gott starf innan ungmennafélagshreyfingarinnar. Hann lauk íþróttakennaraprófi árið 1952 og var sundkennari og þjálfari í Sundhöll Hafnarfjarðar 1954-60 og við handknattleiksþjálfun hjá Haukum í Hafnarfirði.

Hörður flutti til Selfoss árið 1960 og tók við starfi forstöðumanns þá nýbyggðar Sundhallar Selfoss. Þar þjálfaði hann og kenndi sund og fleiri íþróttir til ársins 1983. Hann starfaði mikið með Ungmennafélagi Selfoss og sat m.a. í stjórn félagsins í sextán ár, þar af sem formaður í níu ár.

Hóf störf hjá þjónustumiðstöð Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) árið 1984 og vann þar til starfsloka árið 1999.

Hörður var gerður að heiðursfélaga Ungmennafélags Selfoss á 40 ára afmæli félagsins árið 1976 og var í hópi fyrstu gullmerkjahafa félagsins á hálfrar aldar afmæli Ungmennafélags Selfoss árið 1986. Hann var einnig sæmdur starfsmerki UMFÍ og gullmerki Sundfélags Hafnarfjarðar.

Ungmennafélag Selfoss þakkar Herði ómetanlegt framlag hans til félagsins og sendir fjölskyldu innilegar samúðarkveðjur.

---

Hörður ásamt sundliði Selfoss sem hann þjálfaði árin 1964-1965.
Myndina tók Tómas Jónsson og er hún í eigu Héraðsskjalasafns Árnesinga.