Bikarkeppni FRÍ | Fjóla Signý nálægt sínu besta

Frjálsar - Bikarlið HSK innanhúss 2019
Frjálsar - Bikarlið HSK innanhúss 2019

Bikarkeppni Frjálsíþróttasambands Íslands fór fram í Kaplakrika laugardaginn 2. mars þar sem átta lið tóku þátt. HSK sendi ungt og efnilegt lið til keppni sem samanstóð af reynsluboltum í bland við ungt og efnilegt frjálsíþróttafólk sem öll stóðu sig mjög vel. Þó nokkuð var um meiðsli í liðinu en maður kemur í manns stað. Afrakstur dagsins var eitt silfur ásamt fullt af fjórðu og sjöttu sætum. Nokkrar persónulegar bætingar litu dagsins ljós. Liðið hafnaði í fimmta sæti af átta þátttökuliðum í bikarkeppninni.

Fjóla Signý Hannesdóttir Umf. Selfoss, reynslumesti keppandi HSK fór fyrir liðinu og stóð sig vel. Hún sýndi svo ekki verður um villst að hún er að ná sínu fyrra formi aftur og varð til að mynda önnur í 60 m grindahlaupinu rétt við sitt besta. Þá varð hún fjórða í þrístökki, en var óheppin með lengstu stökkin sín og hefði hæglega getað sigrað þessa grein.

Unnur Kjartansdóttir Umf. Bisk. bætti sig í hástökki um 5 cm er hún vippaði sér yfir 1,55 m, Máni Snær Benediktsson Umf. Hrun. bætti sig vel í 1.500 m. hlaupi er hann kom í mark á 4:52, 45 mín. Þá bætti Birta Sigurborg Úlfarsdóttir Dímon sig um 15 sekúndubrot í 400 m sem hún hljóp á 62,40 sek. Aðrir stóðu sig einnig mjög vel enda liðið ungt og verður án efa í keppni um bikarmeistaratitil félagsliða innan skamms tíma. Það sem einkenndi HSK liðið þennan dag var samheldni, einbeiting og jákvæðni þar sem allir lögðu sig hundrað og fimmtíu prósent fram. Það eru bjartir tímar framundan.

óg

---

Bikarlið HSK sem keppti á MÍ innanhúss 2019.
Ljósmynd: HSK