Dögurður hjá Selfoss getraunum

Egg og beikon
Egg og beikon

Á fyrsta vetrardag, laugardaginn 26. október, bjóða Selfoss getraunir öllum tippurum og fjölskyldum þeirra í dögurð (brunch). Ingi Þór kokkar hráefni frá Krás og Guðnabakaríi með góðri aðstoð foreldra í 2. flokki.

Dögurðurinn hefst kl. 11:30 í Tíbrá félagsheimili Umf. Selfoss. Einnig verða veitt verðlaun fyrir í hópleikinn og bikarkeppnina sem er nýlokið. Selfoss getraunir hvetja tippara til að taka alla fjölskyldumeðlimi með því getraunastarf er félagsstarf fyrir alla fjölskylduna. Mætum öll og eigum notalega stund saman með léttu spjalli og yfir góðum mat.

Hlökkum til að sjá ykkur,
Selfoss getraunir og 2. flokkur kvenna og karla