Í gær var dregið í 16-liða úrslit Poweradebikarsins, bæði í karla og kvennaflokki. Þar áttu Selfyssingar fulltrúa í báðum skálum, þó hafa karlarnir ekki leikið leik sinn í 32-liða úrslitum.
Strákarnir eiga leik við ÍH í 32-liða úrslitum, en hann fer fram í Kaplakrika föstudagskvöldið 1. nóvember kl 20.00. Komist þeir í gegnum það verkefni þá bíður þeirra ekki minna verkefni, en Selfoss mun þá taka á móti hinu liðinu frá Kaplakrika, Íslandsmeisturum FH, í Set höllinni. Miðað er við að 16-liða úrslit fari fram sunnudaginn 17. nóvember.
Stelpurnar upplifðu dejavoo í gær, en annað árið í röð taka þær á móti Fram í Set höllinni í eina Olísdeildarslag 16-liða úrslitanna. Miðað er við að leikir 16-liða úrslita fari fram 4. eða 5. nóvember. Nákvæm tímasetning mun verða kynnt á samfélagsmiðlum Selfoss handbolta þegar nær dregur. Hér að neðan má sjá dráttinn í heild sinni.
16-liða úrslit Poweradebikars kvenna
16-liða úrslit Poweradebikars karla