Fimleikadeildin leitar að framkvæmdastjóra

Selfoss_merki_nytt
Selfoss_merki_nytt

 

Fimleikadeild Ungmennafélags Selfoss leitar að framkvæmdastjóra í 75% starfshlutfall. Starfið er krefjandi, skemmtilegt og fjölbreytt. Hjá deildinni er öflugt barna-, unglinga- og afreksstarf, auk þess sem rekin er fimleikaakademía við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Hjá deildinni starfar sterkt teymi þjálfara, deildarstjóra, iðkenda og sjálfboðaliða.

 

Helstu starfssvið:

  • Ábyrgð á daglegum rekstri og fjárhagslegu skipulagi deildarinnar
  • Samskipti við foreldra, þjálfara og fimleikahreyfinguna
  • Starfsmannastjórnun
  • Mótun stefnu deildarinnar í samráði við deildarstjóra og yfirþjálfara
  • Skipulag viðburða, markaðsmál, kynningar og styrksumsóknir
  • Samskipti við sveitarfélagið og önnur félög innan íþróttahreyfingarinnar, styrktaraðila og fjölmiðla.

 

Hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi er æskileg
  • Þekking og reynsla af rekstrarstjórnun og fjárhagsáætlanagerð
  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar
  • Að vera skipulagður, lausnamiðaður, með leiðtogahæfileika og gott frumkvæði
  • Áhugi á íþróttum

 

Viðkomandi þarf að geta hafið störf 2. janúar. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Garðarsdóttir, formaður stjórnar Fimleikadeildar Umf. Selfoss í síma 895-5767. Umsókn ásamt ferilskrá sendist fyrir 31. október á inga@arborg.is.