Fjögur lið frá Selfossi spila í Laugardalshöllinni!

Laugardalshöll
Laugardalshöll

Um helgina munu fjögur lið frá Selfossi leika á bikarhelgi HSÍ í Laugardalshöllinni, þrjú þeirra eru þegar komin í úrslitaleikina. Ekkert annað lið á Íslandi er með þrjú yngri flokka lið í úrslitum.

Fyrir áhugasama fylgja hér með leiktímar Selfoss liðanna. Gaman væri að sjá fólk fjölmenna í Höllina og styðja okkar lið, jafnt meistaraflokk sem yngri flokka.

Föstudagur
17:15: Selfoss - ÍR (Meistaraflokkur karla)

Laugardagur
11:00: Selfoss - HK (4. flokkur kvenna)

Sunnudagur
11:00: Selfoss - Fram (4. flokkur karla)
20:00: Selfoss - Fram (3. flokkur kvenna)

Áfram Selfoss!