Forskráning fyrir fimleikaárið 2017-2018

Mynd m
Mynd m

Forskráning fyrir fimleikaárið 2017-2018 er hafin inn á selfoss.felog.is. Allir þeir sem skrá sig fyrir 1. júlí eru í forgangi í hópa hjá deildinni. Iðkendur sem voru hjá deildinni síðasta vetur þurfa einnig að skrá sig.

Þegar forskráð er inn á síðunni þarf að athuga að ganga frá skráningunni alla leið það er ganga frá greiðslu núll krónur. Ef þið fáið staðfestingarpóst hefur skráningin tekist annars ekki.

Endilega skrá sig tímanlega inná selfoss.felog.is.