Forvarnardagurinn í Árborg

forvarnardagurinn
forvarnardagurinn

Miðvikudaginn 4. október var forvarnardagurinn haldinn um allt land og stóð forvarnarhópur Árborgar fyrir glæsilegri dagskrá eins og síðustu ár. Nemendum 9. bekkja úr grunnskólunum þremur í sveitarfélaginu var skipt upp í hópa þvert á skólana og hóparnir sóttu viðburði og fengu kynningar á ýmsu sem tengist forvörnum á einn eða annan hátt. Nemendur sóttu fyrirlestur hjá fulltrúa frá lögreglunni sem fjallaði um forvarnarmál tengd henni, Golfklúbbur Selfoss kynnti sína starfsemi, Velferð fjallaði um sjálfsmynd, Félagsmiðstöðin Zelsíuz var með hópefli og einnig fengu nemendur kynningu á líkamsrækt í World Class.

Dagskráin hófst með setningu í Selfossbíó en þar ávarpaði formaður fræðslunefndar, Sandra Dís Hafþórsdóttir þátttakendur, nemendur hlýddu á ávarp frá forseta Íslands og Karitas Harpa mætti og hvatti nemendur til dáða í sínu lífi.

Deginum lauk svo með uppgjöri hópanna á verkefnum af vefsvæðinu www.forvarnardagur.is og grillveislu í anddyri Vallaskóla.

Forvarnarhópur vill koma á framfæri þakklæti til starfsmanna og styrktaraðilla.
Páll Sveinsson, aðstoðarskólastjóri í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri
Hermann Ö. Kristjánsson, deildarstjóri eldri deildar Sunnulækjarskóla
Guðmundur Sigmarsson, deildarstjóri efsta stigs Vallaskóla
Gissur Jónsson, framkvæmdastjóri Umf. Selfoss
Gunnar E. Sigurbjörnsson, tómstunda- og forvarnafulltrúi Sv. Árborgar