Í síðasta fréttabréfi Umf. Selfoss sögðum við frá upphafi vetrarstarfsins og árangri deildanna í september. Í október hélt starfið áfram af krafti, með fjölmennum æfingum, keppni heima og erlendis og viðburðum sem sýna vel fjölbreytnina innan félagsins.
Fimleikafólk tók þátt í Evrópumóti, Einar Gíslason fagnaði sigri í Kristalsdeildinni og samstarf við Véstein Hafsteinsson opnaði ný tækifæri í frjálsum íþróttum. Um mánaðamótin tók Selfoss-Suðri á móti 178 keppendum á Íslandsmóti í boccia og samstarf Suðra og Umf. Selfoss hlaut hvatningarverðlaun UMFÍ. Hér förum við yfir fréttir frá deildunum og það sem bíður okkar í nóvember.
Átta iðkendur og einn þjálfari frá fimleikadeildinni tóku þátt í Evrópumótinu í hópfimleikum í Finnlandi í október. Mikil vinna lá að baki þátttökunni og hópurinn sýndi bæði dugnað og þrautseigju í undirbúningi og keppni. Deildin er stolt af sínu fólki og óskar öllum til hamingju með þátttökuna.
Í september undirritaði deildin jafnframt iðkendasamninga við iðkendur í meistaraflokki og 1. flokki. Samningarnir styðja við áframhaldandi uppbyggingu afreksstarfsins og eru mikilvægur þáttur í því að skapa metnaðarfullum iðkendum góðar aðstæður til að halda áfram að bæta sig.
Iðkendur í 3. flokki og eldri fengu nýja æfingaboli í október og settu þeir skemmtilegan svip á æfingarnar. Hótel Geysir gaf iðkendum í 1. flokki og meistaraflokki bolina sína og fær fyrirtækið kærar þakkir fyrir stuðninginn.
Deildin tók einnig þátt í Bleikum október með bleikum þemaæfingum og sýndi þannig stuðning við átakið.
Nýtt námskeið í fullorðinsfimleikum hefst 2. nóvember. Einnig er hægt að kaupa stök skipti, sem hentar vel þeim sem vilja prófa eða mæta þegar færi gefst. Fimleikar eru skemmtileg leið til að hreyfa sig og tilvalið fyrir vinahópa að hittast á æfingu.
Helstu dagsetningar fram undan eru:
20. nóvember: Mótaröð.
21.–22. nóvember: Haustmót yngri.
28.–29. nóvember: Haustmót eldri.
12. desember: Jólasýning.
19. desember: Jólafrí hefst.
Vetraræfingar frjálsíþróttadeildarinnar eru komnar á fullt og starfið fer vel af stað. Yngstu hóparnir, fyrir iðkendur í 4. bekk og yngri, eru fjölmennir og vel mannaðir af þjálfurum. Í október tóku iðkendur þátt í Bronsleikum ÍR í Reykjavík, þar sem áhersla var lögð á virka þátttöku og skemmtilega upplifun.
Iðkendur í 2. bekk og yngri æfa tvisvar í viku en 3. og 4. bekkur þrisvar. Hjá 5. og 6. bekk eru þrjár æfingar á viku og hjá 7. og 8. bekk fjórar. Þessir hópar vinna með reynslumiklum þjálfurum og eiga nokkur mót fram undan.
Hópurinn fyrir 15 ára og eldri hefur aldrei verið fjölmennari. Þar eru fimm æfingar á viku og undirbúningurinn beinist nú að styrk, sprengikrafti og þoli, áður en meiri áhersla verður lögð á tækni.
Eitt stærsta verkefni mánaðarins var heimsókn Vésteins Hafsteinssonar, eins þekktasta kringlukastþjálfara heims. Vésteinn hefur tekið að sér fjarþjálfun Hjálmars Vilhelms Rúnarssonar og dvaldi á Selfossi í viku við æfingar og undirbúning.
Þjálfarar deildarinnar, Rúnar Hjálmarsson og Yngvi Karl Jónsson, munu vinna náið með Vésteini og stýra æfingunum hér heima í samstarfi við hann. Verkefnið er stórt tækifæri fyrir Hjálmar og sú þekking sem verður til í samstarfinu mun einnig nýtast við að efla kast- og styrktarþjálfun innan deildarinnar.
Tuttugu iðkendur eru í frjálsíþróttaakademíunni og æfa þar tvisvar í viku, auk þess sem þeim stendur til boða að æfa með meistaraflokknum. Í október hélt Perla Ruth Albertsdóttir frá PS árangri fyrirlestur fyrir hópinn um næringu, orkudrykki, svefn og fleiri þætti sem skipta máli í daglegu lífi íþróttafólks. Fræðslan féll vel í kramið hjá iðkendum.
Frjálsíþróttadeildin tók einnig þátt í forvarnardegi Árborgar 21. október. Deildin var með stöð í Kappahl-höllinni og tók á móti um 200 nemendum í 9. bekk, sem fengu að prófa spretthlaup með tímatöku.
Í fullorðinsfrjálsum var haldin bleik „Helgu litlu“ æfing til minningar um Helgu Guðmundsdóttur. Helga var meðal iðkenda frá upphafi starfsins og tók þátt þar til veikindi komu í veg fyrir það, en hún lést í sumar. Æfingin verður árlegur viðburður í október til að heiðra minningu hennar.
Fullorðinsfrjálsar eru tvisvar í viku og deildin tekur vel á móti nýjum iðkendum.
Fram undan eru Gaflarinn í Kaplakrika 7. nóvember og Silfurleikar ÍR í Laugardalshöll 21. nóvember.




Allir yngri flokkar handknattleiksdeildarinnar eiga keppnisverkefni í nóvember. Fimmti og sjötti flokkur karla og kvenna keppa fyrstu tvær helgar mánaðarins, sjöundi flokkur helgina 14.–15. nóvember og áttundi flokkur helgina 21.–22. nóvember.
Hjá 3. og 4. flokki er fyrsta lota vetrarins að ljúka og ný að hefjast. Liðin hafa náð mörgum góðum úrslitum og haldið áfram að þróa sinn leik.
Í lok október var landsliðsvika kvenna og í byrjun nóvember tekur landsliðsvika karla við. Umf. Selfoss á fjölmarga fulltrúa í verkefnunum:
U19 kvenna: Eva Lind Tyrfingsdóttir, Inga Dís Axelsdóttir og Sylvía Bjarnadóttir.
U17 kvenna: Bára Ingibjörg Leifsdóttir, Eva Sól Axelsdóttir, Hjördís Gauja Kjartansdóttir og Þórey Mjöll Guðmundsdóttir.
U21 karla: Hákon Garri Gestsson og Jónas Karl Gunnlaugsson.
U19 karla: Aron Leo Guðmundsson og Ragnar Hilmarsson.
U17 karla: Daníel Hilmar Hilmarsson, Halldór Steinar Benjamínsson, Kári Einarsson, Sveinn Ísak Hauksson og Sölvi Berg Auðunsson.
U15 karla: Victor Marel Vokes.
Hæfileikamótun HSÍ fór einnig fram um miðjan október. Þar voru fulltrúar Selfoss þær Embla Dís Sigurðardóttir, Hilda Karen Rise Ómarsdóttir, Arndís Embla Viktorsdóttir og Talía Baldursdóttir, ásamt þeim Kára Vilberg Jónssyni og Óskari Braga Bjarkasyni.
Við óskum öllum þessum leikmönnum til hamingju með valið og góðs gengis í verkefnunum.
Handknattleiksdeildin fékk á ný heimsókn frá vinum sínum í MTV Lübeck í Þýskalandi, sem komu fyrst til Selfoss fyrir tveimur árum. Heimsóknin er skemmtilegur hluti af tengslum félaganna og samstarfi yfir landamæri.
Nánar má lesa um heimsókn MTV Lübeck hér.
Meistaraflokkar deildarinnar eru á fullu í sínum keppnum. Karlaliðið hefur átt erfiða byrjun á tímabilinu, en kvennaliðið hefur farið ágætlega af stað og er með fimm stig í deildinni. Ungu leikmennirnir í Selfoss 2 hafa byrjað sérstaklega vel í Grill 66-deildinni og verið við topp deildarinnar.
Nóg er af leikjum fram undan og við hvetjum stuðningsfólk til að mæta og styðja liðin. Meðal verkefna kvennaliðsins er bikarleikur gegn Víkingi 18. nóvember kl. 18:45 í Virkinu í Safamýri.
| Dagsetning | Tími | Leikur | Keppni | Leikstaður |
|---|---|---|---|---|
| 8. nóvember | 18:00 | Selfoss – KA/Þór | Olísdeild kvenna | SET-höllin |
| 13. nóvember | 18:00 | Selfoss – Stjarnan | Olísdeild kvenna | SET-höllin |
| 13. nóvember | 20:15 | Selfoss – KA | Olísdeild karla | SET-höllin |
| 14. nóvember | 16:00 | Selfoss 2 – Fram 2 | Grill 66-deild karla | SET-höllin |
| 18. nóvember | 18:45 | Víkingur – Selfoss | Powerade-bikar kvenna | Virkið |
| 20. nóvember | 18:30 | Stjarnan – Selfoss | Olísdeild karla | Heklu-höllin |
| 20. nóvember | 19:00 | Selfoss – Valur | Olísdeild kvenna | SET-höllin |
| 21. nóvember | 16:15 | Grótta – Selfoss 2 | Grill 66-deild karla | Hertz-höllin |
| 27. nóvember | 19:30 | Valur – Selfoss | Olísdeild karla | N1-höllin |
| 27. nóvember | 19:30 | Selfoss 2 – Haukar 2 | Grill 66-deild karla | SET-höllin |
Leiktímar geta breyst. Fylgist með nýjustu upplýsingum á samfélagsmiðlum handknattleiksdeildarinnar og á hsi.is.
Knattspyrnutímabilinu lauk með formlegum hætti á lokahófi deildarinnar í Hvítahúsinu 3. október. Leikmenn og velunnarar komu saman, gerðu upp sumarið og nutu steikarhlaðborðs. Að venju voru veitt verðlaun og viðurkenningar fyrir árangur, framfarir og framlag til félagsins.
Í 2. flokki karla var Auðunn Valdimarsson markahæstur, Arnór Ingi Árnason fékk viðurkenningu fyrir mestu framfarir og Maksymilian Luba var valinn besti leikmaður.
Í 2. flokki kvenna voru Katrín og Sólrún markahæstar. Bríet Fanney Jökulsdóttir fékk viðurkenningu fyrir mestu framfarir og Sólrún Njarðardóttir var valin besti leikmaður.
Verðlaun í meistaraflokki karla:
Viðar Örn Kjartansson: Besti leikmaður, markakóngur og sóknarmaður ársins.
Maksymilian Luba: Efnilegasti leikmaður.
Guðmundur Stefánsson: Mestu framfarir og miðjumaður ársins.
Ivan Paponja: Varnarmaður ársins.
Verðlaun í meistaraflokki kvenna:
Eva Lind Elíasdóttir: Besti leikmaður og varnarmaður ársins.
Stevie Reynolds: Markadrottning.
Hildur Eva Bragadóttir: Efnilegasti leikmaður.
Isabella Arnarsdóttir: Mestu framfarir.
Juliana Marie Paoletti: Miðjumaður ársins.
Védís Ösp Einarsdóttir: Sóknarmaður ársins.
Aron Fannar Birgisson og Brynja Líf Jónsdóttir hlutu Guðjónsbikarinn. Védís Ösp Einarsdóttir og Brynjar Bergsson fengu viðurkenningar fyrir mark ársins, Jón Karl Jónsson var valinn félagi ársins og Viðar Arason sjálfboðaliði ársins.
Einnig voru veittar viðurkenningar fyrir áfanga í leikjafjölda með Selfossi:
50 leikir: Aron Lucas Vokes, Dagur Jósefsson, Daði Kolviður Einarsson, Frosti Brynjólfsson, Védís Ösp Einarsdóttir og Embla Katrín Oddsteinsdóttir.
100 leikir: Aron Fannar Birgisson, Ívan Breki Sigurðsson og Brynja Líf Jónsdóttir.
150 leikir: Viðar Örn Kjartansson.
250 leikir: Eva Lind Elíasdóttir og Magdalena Anna Reimus.
Við óskum öllum verðlaunahöfum innilega til hamingju og þökkum þeim sem hafa lagt sitt af mörkum til starfs deildarinnar.
Undirbúningur fyrir næsta tímabil er hafinn og nokkrir leikmenn karlaliðsins hafa skrifað undir nýja samninga. Dagur Jósefsson, Brynjar Bergsson og Elías Karl Cooper Heiðarsson hafa allir framlengt um tvö ár og verða áfram í vínrauðu þegar Selfoss tekur þátt í Lengjudeildinni á næsta ári.
Varnarmaðurinn Geir Sigurbjörn Ómarsson hefur jafnframt gengið til liðs við Selfoss frá KFA og skrifað undir tveggja ára samning. Geir er örvfættur miðvörður sem getur einnig leikið sem bakvörður. Hann hefur góða reynslu af meistaraflokksknattspyrnu og var fyrirliði KFA. Við bjóðum Geir hjartanlega velkominn til félagsins.
Vinna við ráðningu þjálfara meistaraflokks kvenna stendur yfir og verður nánar sagt frá henni þegar ráðning liggur fyrir.
Pílufélag Selfoss tók þátt í Íslandsmóti félagsliða á Bullseye 17.–18. október. Félagið hafnaði í 7. sæti og sendi í fyrsta sinn tvö karlalið til keppni. Mikil ánægja var með þátttökuna og stefnan er sett á að gera enn betur að ári.
Einar Gíslason vann glæsilegan sigur í 7. umferð Kristalsdeildarinnar 25. október. Kristalsdeildin er efsta deildin í deildarkeppni Íslenska pílukastsambandsins og árangurinn því stór áfangi fyrir Einar og deildina.
Á leið sinni að sigrinum lagði Einar meðal annars Alexander Veigar Þorvaldsson, ríkjandi úrvalsdeildarmeistara, 4–1, og Hörð Þór Guðjónsson, ríkjandi Íslandsmeistara, 5–1.
Einar hefur að undanförnu skipað sér í hóp fremstu pílukastara landsins og er góð fyrirmynd fyrir aðra iðkendur. Við óskum honum innilega til hamingju með árangurinn.
Fimm ára afmælismót Selfoss Open var á dagskrá á Hótel Selfossi 30.–31. október. Alls skráðu 128 keppendur sig til leiks, fleiri en nokkru sinni áður. Mótið hefur fest sig í sessi sem einn af stóru viðburðunum í íslensku pílustarfi og laðar til Selfoss keppendur víðs vegar að af landinu.
Keppni í úrvalsdeild ÍPS var einnig á dagskrá á Hótel Selfossi laugardaginn 31. október, með ókeypis aðgangi fyrir áhorfendur og beinni útsendingu á Sýn Sport.
Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra og Selfoss-Suðra í einstaklingskeppni í boccia fór fram 31. október og 1. nóvember. Keppt var í íþróttahúsi Vallaskóla og IÐU og tóku alls 178 keppendur þátt, auk aðstoðarfólks og þjálfara.
Fjórir keppendur Selfoss-Suðra komust á verðlaunapall:
Reynir Arnar Ingólfsson: 1. sæti í 2. deild.
Telma Þöll Þorbjörnsdóttir: 3. sæti í 2. deild.
Ína Owen Valsdóttir: 2. sæti í 4. deild.
Katla Sif Ægisdóttir: 3. sæti í 4. deild.
Við óskum þeim og öllum keppendum til hamingju með mótið.
Á laugardeginum komu forsetahjónin, Halla Tómasdóttir og Björn Skúlason, í heimsókn. Þau gáfu sér góðan tíma til að ræða við keppendur, fylgjast með mótinu og prófuðu að lokum sjálf að keppa í boccia með öðrum gestum og fulltrúum íþróttastarfsins.
Helginni lauk með lokahófi, glæsilegu hlaðborði og veislustjórn Jóns Bjarnasonar. Koppafeiti lék fyrir dansi og var dansgólfið fullt fram eftir kvöldi.
Á lokahófinu hlutu Selfoss-Suðri og Umf. Selfoss hvatningarverðlaun UMFÍ fyrir samstarfið um að Suðri yrði sérdeild innan ungmennafélagsins. Guðríður Aadnegard og Rakel Magnúsdóttir, svæðisstjóri SIU, afhentu Ófeigi Ágústi Leifssyni, formanni Selfoss-Suðra, og Helga Haraldssyni, formanni Umf. Selfoss, verðlaunin.
Viðurkenningin er mikilvæg fyrir félagið og þá hugsun sem liggur að baki samstarfinu: að allir eigi heima í íþróttastarfi og geti verið hluti af sama félagsskap. Með nánara samstarfi deilda skapast fleiri tækifæri til að deila þekkingu, styðja við þjálfara og sjálfboðaliða og þróa verkefni sem fleiri geta tekið þátt í. Starf Selfoss-Suðra er mikilvægur hluti af Umf. Selfoss og samstarfið styrkir félagið í heild.
Í tilefni af 40 ára afmæli Suðra færðu Halldór Sævar Guðbergsson, gjaldkeri ÍF, og Linda Kristinsdóttir, ritari ÍF, deildinni gjafabréf fyrir tveimur trampólínum. Stjórn Selfoss-Suðra færir ÍF kærar þakkir fyrir gjöfina.
Ófeigur Ágúst Leifsson og Þórdís Bjarnadóttir, fyrrverandi formaður og gjaldkeri Selfoss-Suðra, hlutu jafnframt silfurmerki ÍF fyrir framlag sitt til íþrótta fatlaðra. Við óskum þeim innilega til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu.
Sérstakar þakkir fá allir sjálfboðaliðar sem komu að mótinu. Vinna þeirra gerði þessa fjölmennu og ánægjulegu helgi mögulega.
Hér er svo hægt að lesa umfjöllun mbl.is um mótið, með myndum
https://www.mbl.is/sport/frettir/2026/11/01/taeplega_200_keppendur_a_selfossi/
Taekwondodeildin tók þátt í æfingabúðum á Akureyri í október, þar sem farið var yfir helstu þætti í bardaga. Iðkendur kepptu einnig á bikarmóti TKÍ og þar náði Ivan Berkis frábærum árangri með gullverðlaunum bæði í formum og bardaga.
Fimm iðkendur frá Selfossi tóku þátt í undirbúningsæfingum fyrir svartbeltispróf hjá Taekwondo akademíunni helgina 23.–25. október.
Næsta stóra verkefni deildarinnar er Íslandsmótið í bardaga í Keflavík 7. nóvember. Við óskum keppendum góðs gengis.




Við þökkum iðkendum, þjálfurum, foreldrum, sjálfboðaliðum og samstarfsaðilum fyrir októbermánuð. Það er ánægjulegt að sjá hversu fjölbreytt starfið er, allt frá fyrstu æfingum yngstu iðkendanna til landsliðsverkefna, stórra móta og hreyfingar fyrir fullorðna. Mætum á viðburði, styðjum okkar fólk og tökum vel á móti þeim sem vilja slást í hópinn.
Fréttabréfið er unnið úr upplýsingum frá deildum Umf. Selfoss. Þær deildir sem sendu inn efni eiga fréttir í þessu yfirliti.
Hægt er að lesa eldri fréttabréf hér:
Fréttabréf Umf. Selfoss – Október
Fréttabréf Umf. Selfoss – September