Fyrsta umræðupartý UMFÍ

Fyrsta umræðupartý UMFÍ fór fram með pompi og prakt föstudaginn 3. febrúar síðastliðinn. Til partýsins mættu um 50 ungmenni á aldrinum 17 ára og eldri sem og um 30 stjórnendur og starfsmenn héraðssambanda og íþróttafélaga víðs vegar af landinu. Átta ungmenni tóku þátt af sambandssvæði HSK, fulltrúar úr ungmennaráði Árbogar og ungmenni úr Flóahreppi.

Sjá nánar frétt á vef UMFÍ

Þrjú mismunandi umræðuefni voru rædd í boðinu. Það fyrsta var þátttaka í skipulagðri hreyfingu og íþróttum. Annað var fræðsla og forvarnir og það þriðja var hipp og kúl íþróttastarf.

Margar áhugaverðar hugmyndir komu fram sem vert er fyrir ungmennafélagshreyfinguna að skoða. Til dæmis kom fram hugmynd um skiptiíþróttir þar sem hópar skiptast á að mæta á æfingar hvor hjá öðrum. Bjóða upp á fleiri hópa og eða æfingar þar sem lítil eða engin áhersla er á keppni – létta þarf pressuna um mætingaskyldu og það að keppa og setja meiri fókus á það félagslega, það er að taka þátt og hitta félaga. Einnig komu fram óskir um íþróttaklúbba, þar sem ungmenni gætu komið saman, farið í skipulagða leiki og fjölbreyttar íþróttir á léttum nótum, allt til þess að hafa gaman í stað þess að keppa.

Fyrirmyndir á sama aldri

Jafnframt kom fram hugmynd um að hafa fyrirmyndir sem væru nær ungmennunum sjálfum – einhvern sem væri til staðar í félaginu og nær þeim í aldri. Að auki kom fram að auka þurfi hlutfall ungmenna í stjórnum félaga og halda opna stjórnarfundi hjá félögum sem allir áhugasamir geta mætt og komið sínum skoðunum á framfæri. Mun fleiri áhugaverðir punktar komu fram. Unnið verður úr öllum hugmyndum á næstu dögum og þær teknar saman.

Ungmennaráð UMFÍ sá um alla framsetningu og utanumhald partýsins.

Viðburðurinn var styrktur af Evrópu unga fólksins og var þetta fyrsta umræðupartýið af fjórum sem haldin verða. Næsta partý fer fram í maí 2017.