Keppendur Umf. Selfoss stóðu sig frábærlega á Íslandsmóti öldunga í borðtennis sem fór fram í Snælandsskóla í gær.
Þrír keppendur frá félaginu tóku þátt og allir náðu þeir sæti á verðlaunapalli.
Stefán Orlandi og Rubén urðu Íslandsmeistarar í tvíliðaleik í flokki 40–49 ára. Rubén bætti síðan við silfurverðlaunum í einstaklingsflokki 40–49 ára.
Sérstaklega ber að nefna Holger Kuehne, sem vann til bronsverðlauna í einstaklingsflokki 50–59 ára á sínu allra fyrsta móti. Frábær byrjun hjá Holger og vonandi það fyrsta af mörgum góðum mótum.
Umf. Selfoss óskar keppendum innilega til hamingju með glæsilegan árangur.
Að lokum sendum við Halldóru okkar bestu batakveðjur.

