Góður árangur á Stórmóti ÍR

Ásta Kristín sigraði kúluvarp og bætti sinn besta árangur
Ásta Kristín sigraði kúluvarp og bætti sinn besta árangur

Nokkrir keppendur frá Frjálsíþróttadeild Selfoss tóku þátt í Stórmóti ÍR sem haldið var í frjálsiþróttahöllinni í Reykjavík 8.-9.febrúar. Í flokki 8 ára og 9-10 ára var boðið upp á keppni í fjölþraut þar sem aðaláherslan er á að hafa gaman og allir fá þátttökuverðlaun.

Verðlaunahafar frjálsíþróttadeildar Selfoss:

11 ára flokkur:

Helga Þórbjörg Birgisdóttir vann silfurverðlaun í fimmtarþrautinni. Hún náði bestum árangri allra keppenda í kúluvarpi með 7.23m löngu kasti og í langstökki stökk hún næstlengst allra er hún stökk 3.51m.

14 ára flokkur:

Andri Fannar Smárason sigraði í stangarstökki er hann flaug yfir 2,28m og í þrístökki vann hann silfurverðlaun er hann bætti sinn besta árangur með 9,54m löngu stökki.

15 ára flokkur:

Ásta Kristín Ólafsdóttir sigraði kúluvarp er hún bætti sinn besta árangur og kastaði 10.43m.

16-17 ára flokkur:

Anna Metta Óskarsdóttir sigraði þrístökk með 11.21m og Arndís Eva Vigfúsdóttir bætti sig í hástökki er hún stökk yfir 1.58m og vann til silfurverðlauna ,hún kastaði síðan kúlunni 11.48m og fékk önnur silfurverðlaun.

18-19 ára flokkur:

Kristján Kári Ólafsson sigraði kúluvarp er hann bætti sinn besta árangur og kastaði 13,23m.

Karlaflokkur:

Daníel Smári Björnsson stökk yfir 1.55m í hástökki og lenti í 1.-2.sæti.

Kristján Kári Ólafsson sigraði kúluvarpið á Stórmóti ÍR og bætti sinn besta árangur

Arndís Eva Vigfúsdóttir  vann til silfurverðlauna bæði í kúluvarpi og hástökki

Helga Þórbjörg Birgisdóttir (önnur frá hægri) vann silfurverðlaun í fimmtarþraut