Byrjendamót borðtennisdeildar Umf. Selfoss fór fram í dag, þrátt fyrir að nokkrir keppendur hafi mætt aðeins seint vegna veðurs. Það sýnir vel þann áhuga og metnað sem er í hópnum.
Keppendur sýndu flotta takta við borðið. Það sem skipti þó mestu máli var að leikmenn sýndu háttvísi, samstöðu og virðingu fyrir öðrum keppendum.
Úrslit mótsins voru eftirfarandi:
1. sæti: Hans
2. sæti: Robert
3. sæti: Draupnir
4. sæti: Ísar
Borðtennisdeild Umf. Selfoss óskar öllum keppendum til hamingju með frábæra frammistöðu og þakkar fyrir skemmtilegt mót.
Nú tekur við jólafrí, en við hlökkum til að halda áfram að spila borðtennis á nýju ári.