Grátlegt tap gegn Íslandsmeisturunum

Katrín á móti fram
Katrín á móti fram

Stelpurnar töpuðu gegn Íslandsmeisturum Fram í Framhúsinu, Safamýri í Olísdeild kvenna í kvöld, 25-24 eftir háspennu lokamínútur.

Í upphafi leiks stimplaði Selfossliðið sig inn snemma og náði 1-3 forustu.  Eftir það skiptust liðin á að halda forustu, en þó munaði aldrei meira en einu marki.  Selfoss voru að spila góðan varnarleik og vel sem lið, þó er hægt að tala um að Katrín Ósk átti frábæran fyrri hálfleik  og varði mjög vel, þar á meðal nokkur dauðafæri.  Liðin gengu til búningsklefa í hálfleik í stöðunni 12-12.

Í seinni hálfleik komu stelpurnar okkar aftur mjög ákveðnar inn í leikinn og skoruðu þrjú fyrstu mörkin og héldu áfram að þjarma að liði Fram þar til staðan var orðin 14-17.  Þá settu Framstelpur aukinn kraft í varnarleik sinn, urðu mun agressívari.  þá fjölgaði mistökum hjá okkar liði og Fram náðu að jafna 17-17.  Síðari helmingur hálfleiksins var svo keimlíkur fyrri hálfleik.  Liðin skiptust á að vera með forustu og aftur munaði aldrei meira en einu marki.  Selfoss jafnaði leikinn, 24-24, 14 sekúndum fyrir leikslok.  Þá tók Fram leikhlé og teiknuðu lokasóknina upp.  Hún gekk upp og skoruðu Framarar sigurmarkið 2 sekúndum áður en flautan gall.  Grátlegt tap staðreynd

Staða Selfoss versnaði í þessari umferð, liðið er sem fyrr á botni deildarinnar með 4 stig.  Fimm stigum fyrir ofan er HK.  Ljóst er að stelpurnar okkar þurfa 5 stig hið minnsta í síðustu þrem leikjunum til að eiga möguleika á umspili um sæti í Olísdeildinni að ári.

Mörk Selfoss:  Kristrún Steinþórsdóttir 5, Harpa Sólveig Brynjarsdóttir 4, Tinna Sigurrós Traustadóttir 4, Perla Ruth Albertsdóttir 4, Ída Bjarklind Magnúsdóttir 3, Hulda Dís Þrastardóttir 2, Sarah Boye 2.

Varin skot: Katrín Ósk Magnúsdóttir 14 (36%).

Nánar er fjallað um leikinn á Sunnlenska.is. Leikskýrslu má sjá hér.

Næst á dagskrá er fyrsti leikurinn af þessum þrem sem stelpurnar okkar eiga eftir.  Sá leikur er á laugardaginn kl. 15:00 í Hleðsluhöllinni og verður frítt inn í boði Bónus.  Oft var þörf á þinni nærveru en nú eru hún nauðsyn.  Strákarnir okkar fara svo af stað eftir bikar fríið á mánudaginn næsta þegar þeir fara í heimsókn til lærisveina Stebba Árna í KA.  Mælum auðvitað líka með því að fjölmenna þangað, en fyrir ykkur örfáu sem ekki komast á Akureyri á mánudag, þá verður leikurinn í þrábeinni á KA TV kl. 18:30.
____________________________________
Mynd: Katrín Ósk Magnúsdóttir var frábær í markinu í kvöld.
Umf. Selfoss / ÁÞG