Gylfi Már í heiðurshöll Selfoss

Gylfi Már
Gylfi Már

Gylfi Már Ágústsson er fjórði Selfyssingurinn sem tekinn er inn í heiðurshöll Selfoss, en þar komast aðeins þeir sem hafa spilað með félaginu í 10 ár eða fleiri. Gylfi var heiðraður í hálfleik Selfoss og Aftureldingar mánudaginn s.l. en Gylfi hefur einmitt verið virkur í starfi Aftureldingar frá því að hann flutti frá Selfoss.

Gylfi spilaði með félaginu frá 1994 til ársins 2006 og átti 112 leiki og skoraði í þeim 128 mörk. Við óskum Gylfa að sjálfsögðu til hamingju með viðurkenninguna.


Gylfi Már ásamt formanni félagsins, Þóri Haraldssyni
Umf. Selfoss/ESÓ