Haustfundur frjálsíþróttaráðs HSK

hsk_rgb
hsk_rgb

Haustfundur frjálsíþróttaráðs HSK verður haldinn miðvikudagskvöldið 7. október næstkomandi í Selinu og hefst kl 20:00.

Öll aðildarfélög ráðsins eru hvött til að senda fulltrúa á fundinn.

Dagskrá fundarins verður eftirfarandi:

  1. Fundarsetning og skipan fundarstarfsmanna
  2. Fundargerð síðasta aðalfundar
  3. Fjárhagsstaða ráðsins
  4. Uppgjör MÍ 11-14 ára 2015
  5. Skipulag héraðsmóta 2016 og starfsmannamál
  6. Stórmót á HSK svæðinu 2016
  7. Önnur mál