Hulda áfram hjá Selfoss

HuldaDís-Ágúst2019
HuldaDís-Ágúst2019

Hulda Dís Þrastardóttir verður áfram í herbúðum Selfoss en hún samdi á dögunum við handknattleiksdeild Selfoss. Huldu þarf ekki að kynna fyrir Selfyssingum enda búin að spila með liðinu í nokkur ár. Hún hefur verið mikilvægur hluti liðsins, bæði í vörn og sókn og skoraði m.a. 38 mörk í 23 leikjum á síðasta tímabili. Hulda verður lykilmaður í ungu og efnilegu liði meistaraflokks kvenna í vetur og er handknattleiksdeildin gríðarlega ánægð með að Hulda skuli hafa samið við deildina.


Mynd: Hulda Dís Þrastardóttir 
Umf. Selfoss / ESÓ